Jólagleði Selkórsins í Seltjarnarneskirkju þann 8. desember kl. 17:00
8. desember 2012 kl. 17:00
Aðra helgi í aðventu ætlar Selkórinn að syngja inn jólin með enskum og íslenskum jólalögum.
Þar verða bæði lög sem allir kunna eins og Englakór frá himnahöll og Hátíð ber að höndum ein og lög sem sjaldnar eru flutt á Íslandi eins og From Virgin´s Womb og Christmas Lullaby
Meðleikari: Dagný Björgvinsdóttir
Stjórnandi: Oliver Kentish
…við getum sungið, við getum sungið… öll í kór